Tónlistin
Progressive metal
Collective
Um mitt ár 2013 hófum við Bragi Bragason gítarleikari samstarf við laga og textasmíðar. Snemma um haustið dróum við síðan Björn Þór Jóhannsson gítarista inn í það samstarf og í framhaldi af því bættust Árni Þráinsson bassaleikari og Stefán Örn Sveinsson trommari í hópinn.
Það kom strax í ljós að samstarfið yrði skemmtilegt og gefandi og á innan við ári var hljómsveitin Collective komin með 12 eðal 'prog metal' lög til flutnings.Haustið 2018 kom fyrsta 10 laga afkvæmið, breiðskífan 'Truth Awaking' í heiminn.
Pínulitla stórhljómsveitin
Duplex
Hljómsveitin Duplex hefur gert það gott á pöbbum landsins undanfarin ár. Hljómsveitin kemur fram sem hybrid dúett eða tríó og státar sig af því að geta spilað allt það sem stórar ballhljómsveitir spila.
Hljómsveitin kemur ekki fram sem 'trúbadorar' sem slíkir, heldur sem fullbúin hljómsveit og getur í raun spilað flest það sem stærri hljómsveitir geta spilað með talsvert minna umstangi og tilkostnaði.Rokk, popp, diskó, soul, blús, djass, kántrí, kokkurinn, gömlu dansarnir. Þessir kumpánar spila þetta allt og geta þar að auki séð um veislustjórn, dinnertónlist, brekkusöng, brúðkaup, skírnarveislur, afmæli og fleira. Allt frá 20 mínútna sérsniðnum prógrömmum upp í þriggja tíma böll.
Klassíska rokkhljómsveitin
Útópía
Hljómsveitin Útópía kom saman á Frönskum Dögum á Fáskrúðsfirði árið 2014, eftir rúmlega 20 ára hlé. Strákarnir náðu að taka 2 léttar æfingar hálfmannaðir en vöðvaminnið lætur ekki að sér hæða ;)
Hér komu saman á ný:
- Jónas Friðrik (búsettur í Reykjavík) - Söngur
- Jóhann Midjord (búsettur í Skagafirði) - Trommur og slagverk
- Júlíus Garðarson (búsettur í Kaupmanahöfn) - Bassi og raddir
- Hlynur Jökulsson (búsettur í Noregi) - Gítar og raddir
- Haraldur Leo Pétursson (búsettur í Austurríki) - Hljómborð og raddir